30.3.03

Vá, hvað ég er búin að vera dugleg um helgina. Ég er búin að taka allan vefinn minn í gegn! Bjó til bakgrunn sem ég nota í mismunandi litum á svo til allar síður, lagaði til og gaf heimasíðunni minni nýtt útlit. Þetta er ótrúlega tímafrekt, því alltaf er hægt að breyta og bæta, en líka skemmtilegt. Á meðan starfsmannafélag bæjarins var að skemmta sér á Akureyri, var ég sem sagt að skemmta mér við þetta.

Næst ætla ég að snúa mér að því að klára vefleiðangurinn og búa til annað vefrallý fyrir 4. bekkinn minn.

Engin ummæli: