12.3.03

Hef verið að skoða verkefni 2 hjá Láru og reyna að átta mig á hvað á að gera. Ef ég skil rétt þá á að tengja 2-4 efnisþætti og lesefni sem hún vísar í og 0-2 aðra, við þessa 4 þætti sem eiga að koma fram á vefsíðunni. Þetta lítur út fyrir að krefjast nokkurrar yfirlegu, en hver veit, kannski er þetta ekki svo erfitt þegar maður byrjar. Annars er ég að fara aftur til Akureyrar nú um helgina á málþing um barna- og unglingabókmenntir. Það verður örugglega mjög gaman en þýðir að ég missi 2 daga úr verkefnavinnunni hér.

Setti lengri útgáfuna af greinargerðinni um UT á skilasíðuna mína, mér fannst þessi hér á blogginu svo snubbótt þegar ég var búin að stytta hana niður í hálfa síðu.

Engin ummæli: