Það var nú ekki eins mikið mál og ég hélt að kóða gögnin, en aftur versnaði í því þegar þurfti að rökstyðja kóðana með setningum úr lýsingunum. Ég vona að ég hafi gert það á fullnægjandi hátt, en þetta getur bara verið svo huglægt mat, t.d. þegar á að meta viðhorf. En, ótrúlegt en satt - ég er búin að skila verkefni 3 á réttum tíma!
Á morgun kemur Stefán Karl í heimsókn í skólann til okkar og ræðir um einelti, reikna ég með, við alla 115 nemendur skólans í einu. Ég ætla að fá að fljóta með nemendum mínum og hlusta á hann, þar sem ég komst ekki á fundinn sem hann er með í kvöld á Egilsstöðum - fyrir allt Austurland, að ég held.
24.3.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli