Búin að halda upp á 11 ára afmæli sonar míns, það gekk ljómandi vel og hér kemur ca. hálf bls. A4 greinargerð til Láru:
UT 2003
Móðurskóli í UT - hver er ávinningurinn?
Lilja Jóhannsdóttir umsjónarmaður Móðurskólaverkefnisins í Grandaskóla sagði frá reynslu þeirra og niðurstöðum úr könnunum um verkefnið meðal foreldra, nemenda og kennara. Verkefnið hófst 1998 og því er að ljúka nú í vor. Fyrstu 3 árin var áhersla á listgreinar en sl. 2 ár hefur áherslan verið á að auka færni kennara og notkun UT í almennri kennslu. Á heimasíðu skólans er hægt að skoða vef um Móðurskólaverkefnið. Könnun meðal foreldra leiddi m.a. í ljós að tölvunotkun mætti vera sýnilegri, nemendur voru almennt jákvæðir og einnig flestir kennarar en þó voru nokkrir kennarar sem telja að minnka ætti áherslu á tölvur.
Svo virðist sem Grandaskóli sé ekki mikið betur settur en margir aðrir skólar í UT þrátt fyrir móðurskólaverkefnið. En það sem mér fannst athyglisverðast í niðurstöðum þeirra er að það skipti sköpum að hafa kennslufræðilegan ráðgjafa í UT og að nauðsynlegt sé fyrir skólann að móta stefnu í upplýsingatækni. Það er verkefni sem ég held að gott væri fyrir alla skóla að taka til athugunar.
Bókaormar á Netinu
Torfi Hjartarson og Þorbjörg Þorsteinsdóttir kynntu verkefnið Bókaormar á Netinu, sem þau hafa unnið að og tengist BarnUng-verkefninu í KHÍ. Þetta verkefni felst í því að gera netvæna bókaormana sem margir kennarar hafa staðið að með nemendum sínum. Kennarar, foreldrar eða jafnvel nemendur sjálfir geta búið ormana til, gefið þeim nafn og valið útlit. Þá er lykilorð sent með pósti og nemendum afhent það svo þeir geta líka bætt inn í ormana heima hjá sér. Síðan geta mamma, pabbi, amma og afi skoðað! Þetta er námsumhverfi á vef sem vex með hverju framlagi. Stór kostur er að hægt er að fá ýmsar tölfræðilegar upplýsingar um bókaormana, eins og lista yfir höfunda og bækur.
Torfi og Þorbjörg voru spurð hvernig ætti að kynna verkefnið og sögðu þau það ekki vera á dagskrá. Verkefnið virðist fyrst og fremst vera hugsað fyrir nemendur og kennara Kennaraháskólans en öllum er frjálst að stofna bókaorma og taka þátt í gagnasöfnuninni. Það gæti jafnvel hentað þeim sem ekki eru vanir að nota tölvur og komið þeim á bragðið.
11.3.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli