Takk fyrir síðast, allir sem voru á UT - mikið var gaman að hittast aftur. Mér fannst ráðstefnan bara nokkuð góð, þó erindin væru miseftirminnileg. Fyrir utan aðalfyrirlestrana þrjá, fór ég á Móðurskóli í UT - hver er ávinningurinn? Kennslustofa í gegnum fjöll og firði, Bókaormar á Netinu, Gagnvirkar skólatöflur, Fjaran og hafið auk þess sem ég kíkti á Tölvur og vísindaiðkun barna og Listasmiðja - Leikur með möguleika. Sem sagt nóg að melta og vinna úr á næstunni. Sem betur fer skrifaði ég niður punkta sem koma að góðum notum þegar kemur að því að skila greinargerð til Láru.
Mikið eru annars undarlegir þessi kassar og strik sem birtast í textanum þegar maður póstar. En þetta getur ekki verið alvarlegt fyrst allt kemur eðlilega út á vefnum og lagast vonandi fljótlega (af sjálfu sér...?)
3.3.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli