Ekki fengum við kennararnir að hlusta á Stefán Karl, þar sem hann sendi okkur öll út og eftir sitjum við eins og eitt stórt spurningamerki. Eitthvað virðist hafa komið upp á því hann var ekki nema um 20 mín. að afgreiða blessuð börnin alveg frá 1.-10. bekk (sem átti að taka 50 mín.) og svo var hann bara farinn! Af því sem hann sagði krökkunum gripu þau á lofti sögu um strák sem átti afmæli, en enginn kom og hann dó. Foreldrar hafa verið að hringja og spyrja út í þetta, en við vitum ekki meir. Nema það að einn strákur í 1.bekk truflaði Stefán svo hann missti þráðinn... en er hægt að taka þegjandi við svona sendingu sem setur nánast allt skólasamfélagið í bænum í uppnám?
Að sjálfsögðu höldum við umræðunni um einelti áfram, en sem betur fer hefur það ekki verið útbreitt vandamál hjá okkur. Við höfum lagt mikla vinnu í að búa til eineltisáætlun, sem verður endurskoðuð nú eftir foreldrafundinn sem Stefán Karl hélt á Egilsstöðum.
28.3.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli