Verð að taka fram að vefurinn minn er ekki alveg tilbúinn, þ.e. það virkar ekki allt enn þá. En svona vefir eru líka í stöðugri þróun og verða aldrei alveg tilbúnir. Ég ætla t.d. að taka leiðbeiningar f. 5.-6. bekk sem ég var búin að setja á heimasíðuna mína og setja þær upp í PowerPoint til að taka þær með mér suður í staðbundnu lotuna og setja kannski inn hljóð og mynd. Ætli allir eigi að vera allan tímann, frá fimmtudegi til laugardags? Ég hef verið að bíða eftir upplýsingum um það, svo ég geti farið að panta flug.
Annars er ég að vinna í vefrallýi f. 4. bekk um vef Seyðisfjarðarskóla, en það gengur hægt með vefleiðangurinn. Ég er alltaf að skipta um efni og finnst erfitt að miða hann við 5.-6. bekk eins og ég ætlaði að gera. Kannski henta svona vefleiðangrar betur fyrir eldri krakka?
2.4.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli