Skoðaði netnotkun hjá 11 ára strák og stelpu í gær og fæ að fylgjast með 17 ára stelpu og 18 ára strák á morgun. Þá hef ég sunnudaginn til að kóða gögnin - kvíði því dálítið... En þetta eru sonur minn og dóttir, systursonur mannsins míns og svo dró ég út eina stelpu úr bekk sonar míns. Það var lítið mál að fá leyfi hjá foreldrum hennar, kom bara við hjá þeim á leiðinni heim í hádeginu í gær og fékk undirskrift.
Eftir hádegi í gær og í dag er starfsfólk Seyðisfjarðarskóla á námskeiði í sálrænni skyndihjálp, þannig að ekki er mikill laus tími þessa dagana, en við ættum að verða betur í stakk búin að taka þeim áföllum sem að höndum ber og veitir ekki af!
21.3.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli