Er búin að vera í allt kvöld að reyna að komast inn á Netið í fartölvu dóttur minnar til að "aktivera" Windows, en hún var ekki búin að því áður en 30 daga fresturinn rann út. Hún hefur ekkert verið á Netinu í þessari tölvu af því að þráðlausa tengingin í menntaskólanum hennar virkar ekki með þráðlausu korti sem við keyptum dýrum dómum. Þetta er nú dálítið fúlt, því nú er ekki hægt að gera neitt í tölvunni! Ætlaði annars að liggja yfir verkefni 2 hjá Láru, þar sem ég er að fara til Akureyrar í fyrramálið og kem ekki aftur fyrr en seint á laugardag, en það verður víst að bíða...
14.3.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli