27.2.03

Bjó til þessa líka fínu takka í 4 lögum með Fireworks, en var ekki búin að finna út hvernig þeir eru fluttir yfir í Dreamweaver þegar ég rakst á enn þá fínni tilbúna Flash-takka þar. Skellti þeim inn á skilasíðuna og líka á tæknisögusíðuna, en fannst þeir ekki passa inn í vefrallýið. Kannski set ég þá á yfirsíðu fyrir vefrallýin þegar ég er búin að búa til fleiri svoleiðis.

Nú er UT alveg að skella á, ég ætla að keyra norður í fyrramálið og er farin að hlakka til. En vefleiðangurinn bíður enn...

Engin ummæli: