Tókst að krækja mér í verulega slæmt kvef og hef ekki verið til stórræðanna síðustu daga. Vefleiðangurinn "Vor við Seyðisfjörð" komst þó á koppinn og var sendur út á Netið í gær. Hann er hugsaður fyrir 4.bekk þar sem mig vantaði verkefni fyrir þau núna eftir páskana. Kannski verður þetta dálítið erfitt fyrir þau, en það kemur þá í ljós hvernig þau spjara sig. Annars getur leiðangurinn hentað nánast hvaða aldri sem er, útkoman fer bara eftir getu hvers og eins.
Verð að bæta því við að ég er búin að sækja um ADSL. Það er nýbúið að setja það upp hér í bænum, en maðurinn í símabúðinni á Egilsstöðum glopraði því út úr sér að það hefði upphaflega ekki staðið til að setja upp ADSL á stöðum með innan við 1500 íbúa. Síðan hefði nokkrum stöðum verið bætt við af því að það eru að koma kosningar! Skil ekki alveg hvaða kosningatrikk það er hjá Símanum, en alla vega - við græddum á því og hann sagði að viðtökurnar væru ótrúlega góðar. Enda var svo mikið að gera hjá þeim að þeir náðu ekki að tengja (eða hvað sem þeir þurfa að gera) hjá mér fyrir páska. En við erum búin að bíða lengi og getum alveg beðið í nokkra daga í viðbót...
19.4.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli