30.4.03

Það kom upp einhver villa í Fireworks hjá mér svo það vildi ekki opnast. Ég þurfti því að henda því út og setja það svo aftur inn upp á nýtt. Þá datt mér í hug að skella mér í gegnum Tutorial 1, en ég hafði áður farið í gegnum Tutorial 2, sem er um vefsíðugerð. Þessi er um grunnatriðin og þvílík vitleysa að hafa ekki byrjað á honum! Þarna kom ýmislegt fram sem ég hefði viljað vera búin að læra fyrr. T.d. hvernig hægt er að vinna með texta, hvernig maður notar Mask til að láta myndir deyja út o.fl. o.fl. Mæli sem sagt með Tutorial 1.

Byrjaði með 4. bekk í vor-vefleiðangrinum í gær. Það gekk mjög vel, þau voru áhugasöm (þó það snjóaði úti...) og flestir voru búnir að velja sér viðfangsefni eftir tímann. Þó sá ég að sennilega er betra að útbúa miða með mögulegum viðfangsefnum og láta þau draga, svo það fáist meiri fjölbreytni í Vorvefinn sem á að verða afrakstur vinnunnar. Reikna með að gera það í næstu viku þegar við höldum áfram með verkefnið.

Bjó til forsíðu á vefinn minn og meininin er að uppfæra svo hinar síðurnar í takt við hana. Kannski kemst ég í það á morgun, fyrst það er aftur frí. Í dag hef ég verið að lesa bloggin hjá ykkur hinum og skoða síðurnar ykkar. Flestir eru greinilega að gera mjög góða hluti, gaman að sjá það.

Engin ummæli: