Hef verið að velta fyrir mér hvaða skjáupplausn er heppilegast að hafa. Ég tók eftir því í staðbundnu lotunni að tölvurnar í KHÍ eru stilltar á hærri skjáupplausn en ég var með heima hjá mér. Þannig að síðurnar mínar (og bakgrunnarnir) sem ég var búin að vanda mig við að stilla upp á skjáinn heima komu alls ekki eins vel út þar. Þegar ég kom heim breytti ég stillingunni hjá mér og lagaði allar síðurnar til, en núna er ég á bókasafninu og þá er lægri skjáupplausn hér! Ef ég hækka hana þá verður allt svo ofursmátt og það er ekki mjög gott fyrir þá sem eru nærsýnir - þó ég sé með gleraugun, þá þarf ég alveg að rýna í textann á sumum síðum- samt er ég búin að stilla View-Text Size á Largest! Ætti ég að færa stillinguna niður aftur?!
Svo var ég líka að æfa mig að búa til hreyfimyndir eins og Björn kenndi okkur, en það vill ekki virka á vefnum... Þarf greinilega að æfa mig betur.
22.4.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli