6.4.03

Nú er vefrallýið fyrir 4.bekk loksins tilbúið. Það er um heimasíðu skólans, sem ég held að sé gott fyrir þau að átta sig aðeins á. Svo er ég búin að búa til glærusýningu upp úr leiðbeiningum um tímaritsgerð fyrir 5.-6.bekk, sem ég ætla að taka með mér í staðbundnu lotuna.

Það var eins og mig grunaði, við þurfum ekki öll að vera allan tímann. Ég er búin að óska eftir því að vera í seinni hópnum, þá þarf ekki að leysa mig af í kennslu á fimmtudeginum og ég þarf bara að fá afleysingu á bókasafninu á föstudeginum. Vonandi tekst mér að klára vefleiðangurinn fyrir fimmtudag, en þá vona ég að ég fái flug suður...

Engin ummæli: