Það gekk bara vel hjá 4. bekk að klára vefrallýið, enda passaði ég að útskýra vel og hafa hjálparorð. Sumum gekk samt hálferfiðlega til að byrja með að lesa það sem var á skjánum beint fyrir framan nefið á þeim, eins og þau séu vön að horfa bara á myndirnar - en svo kom þetta allt saman. Aðrir voru enga stund og kom upp heilmikill keppnisandi, sérstaklega hjá strákunum.
Þau eru líka búin með heimasíðurnar sínar og þær eru komnar á Netið.
Það sama er ekki hægt að segja um vefleiðangurinn minn. Ég komst að því að 5.-6. bekkur á bara eftir að koma tvisvar til mín eftir páskafrí (þau eru á fimmtudögum) og þá tíma þurfum við að nota til að uppfæra heimasíðurnar þeirra frá því í fyrra. Aftur á móti á ég líklega eftir ein 5 skipti með 4. bekk, þannig að vefleiðangurinn kemur til með að miðast við þau.
Ég er eiginlega búin að ákveða efnið: Vor við Seyðisfjörð. Það verður um náttúruna í kringum okkur að vori til; farfuglana og gróðurinn, sennilega aðallega um fuglana. Við eigum lag og texta með þessu nafni, sem þau eru nýbúin að syngja á skólaskemmtun og er mjög vinsælt hérna. Leiðangurinn gengur út á að skoða textann og kynna sér það sem talað er um í honum. Setja síðan upp á vef og senda út á Netið.
Vor við Seyðisfjörð
Það léttir alltaf göngu á vetrarvegi
er vorið boðar komu sína á ný.
Og sólargangur lengist dag frá degi
dimman flýr og golan verður hlý.
Og farfuglanna vængjaþyt ég þekki
þeir vitja lands og kveða hver sinn óð.
Um bjarta nótt er sólin sefur ekki
en sveipar fjörðinn morgun-roðaglóð.
Er hljólátt regnið nýjan gróður nærir
og nálægt sumar léttir séhvert spor.
Og ilm af lyngi blær úr fjalli færir
ég fagna því að senn er komið vor.
Mín heimabyggð er mér sem búið bændum,
sem blómstar ef að hlúð er vel að því.
Að Seyðisfjörður eigi vor í vændum
er von mín nú, er byrjar öldin ný.
Þórunn Sigurðardóttir
9.4.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli