26.4.03

Ákvað að stilla aftur á lægri skjáupplausn heima hjá mér og miða uppsetningar við það, því annars verður allt svo stórt hjá þeim sem eru með lága upplausn. Þannig að skjáupplausnin hjá mér er núna 800x600 pixlar (kemst ekki neðar) og svona verður hún a.m.k. enn um sinn.

Annars hef ég verið að vinna í verkefninu "skipulag á námskeiði/námslotu sem notar Netið og vefmiðla". Ég valdi að vinna skipulag fyrir þemadaga að vori, Vordagar í 4.-6. bekk , sem verða eiginlega beint framhald af vefleiðangrinum sem ég gerði um "Vor við Seyðisfjörð". Verkefnið "kennsluefni á vef" kemur líka til með að tengjast þessu efni og væntanlega lokaverkefnið líka. En ég er enn ekki komin svo langt. Það sem ég hef aðallega áhyggjur af núna er hvort þetta skipulag mitt á námslotu noti Netið og vefmiðla nægilega mikið?

P.s. Nú er búið að tengja ADSL inn á símalínuna hjá mér, en ég er ekki enn búin að fá búnaðinn sem til þarf. Mér skilst að það sem ég ætlaði að fá hafi klárast og sé ekki til í landinu! Það fer nú bráðum að reyna á biðlundina...

Engin ummæli: