2.5.03

Sat við í gær og bjó til takka í Fireworks eins og Björn kenndi okkur í staðbundnu lotunni. Það tók mjög langan tíma að koma þeim í Dreamweaver eins og þeir áttu að vera, en hafðist að lokum og nú prýða þeir nýju forsíðuna mína. Enn á ég eftir að uppfæra útlitið á hinum síðunum og búa til síðu um atvinnu og áhugamál. Svo er það bara lokaverkefnið, því ég held að ég sé búin með öll hin, fyrir utan nokkur smáatriði.

Reyndar hef ég ekki orðið vör við að hafa fengið senda upptökuna sem var gerð í staðbundnu lotunni til að hafa með glærum í margmiðlunarverkefninu. Hafa allir fengið sína upptöku? Mér skildist að vísu að það þýddi ekkert fyrir þá sem eru bara með tengingu um venjulega símalínu að hugsa um svona verkefni, svo ég hef ekki miklar áhyggjur fyrr en ég er búin að fá ADSL. Og já, ég er enn að bíða...

En nú um helgina verð ég alveg í fríi frá tölvum, við hjónin erum sem sé að fara til Akureyrar á árshátíð SR-mjöls. Maður er bara alltaf á Akureyri! Kannski reyni ég að byrja að rissa kennsluvefinn upp, en ég get ekki lofað miklum afköstum. Góða helgi:)

Engin ummæli: