30.11.04

Ný netföng og heimasíða

Á morgun er síðasti dagurinn sem ég hef netfangið bmj@ismennt.is, en það er ég búin að hafa síðan vorið 1993. Meira en 11 og hálft ár! Það er næstum eins og að kveðja hluta af sjálfum sér að láta það fara. Ekki laust við smá saknaðartilfinningu... eða nei annars. Ekki þegar ég hugsa um allan fjandans ruslpóstinn sem ryðst þar inn á hverjum degi. Það verður líklega bara léttir að þurfa ekki lengur að hreinsa þar til daglega.

Í staðinn hef ég fengið 2 ný netföng, dugar ekki minna. Reyndar hef ég haft annað þeirra í meira en ár, en það er svo erfitt fyrir fólk að skilja hvernig það er að ég hef notað það minna en til stóð: baram@simnet.is. Reynið bara að segja það upphátt, en eins og allir sjá þá stendur baram auðvitað fyrir BáraM. Jæja, þetta er sem sagt persónulega netfangið mitt sem ég ætla að nota heima. Skólinn hefur úthlutað okkur netföngum hjá bænum til að nota í vinnunni og er mitt bmj@skolar.sfk.is. Aðeins skárra, en ekki mikið samt. Síðan á ég netfang sem ég nota á MSN, en það er bara_mjoll@msn.com. Nei, það er ekki auðvelt að bera svona óalþjóðlegt nafn í Netheimum. Ég segi ykkur ekki einu sinni hvaða netfang ég fékk hjá KHÍ...

Svo er það heimasíðan hjá Ísmennt sem ég er búin að hafa síðan 1997, eða í 7 ár og geri aðrir betur. Hún hverfur væntanlega líka, en ég hef sett upp vísi að heimasíðu á http://www.simnet.is/baram og verð þar með vefsvæði mitt í framtíðinni. Fyrir utan þessa síðu auðvitað.

Og nú er ég búin að eyða kvöldinu (frá því að Sopranos var búinn) í að lesa og skrifa blogg. Ég sem ætlaði að fara yfir vélritunarpróf, en hvar stendur það að maður eigi að vera að vinna eftir kl. 23:15 á kvöldin? Ég verð bara að segja krökkunum á morgun að tíminn hafi hlaupið frá mér. Því miður.

Engin ummæli: