Kíkið endilega inn á þessa heimasíðu: http://www.touchwoodtoys.com . Þetta er búð sem selur skemmtileg tréleikföng fyrir börn, en það er Nína mágkona mín í Cambridge sem á hana.
Veðrið í dag var alveg í stíl við hugarástandið. Rok og rigning. Norræna kom samt á réttum tíma í morgun (well done!) og svo flautaði hún svo mikið eitthvað um 10 leytið að ég var farin að halda að hún væri að sökkva hérna við bryggjuna. En þetta hlýtur að hafa verið björgunaræfing því enn liggur hún við bryggju og lýsir upp umhverfið. Mér finnst bara vinalegt að hafa þessa fljótandi blokk hér fyrir neðan, þó sumum finnist vélarhljóðið truflandi. Mér finnst það bara notalegt. Svo verður hún farin annað kvöld.
9.11.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli