Mig langar að setja hérna krækju inn á frétt um útskriftina í Kennaraháskólanum um daginn. Þetta var mjög virðuleg athöfn, 119 manns að útskrifast og merkileg ræða hjá rektor. Það eru líka myndir og hér er ein af mér þar sem ég er nýbúin að taka við skírteininu:
Þessi tvö ár hafa liðið ótrúlega hratt, námið var bæði skemmtilegt og mjög gagnlegt. Ég mæli með því við alla kennara að þeir drífi sig í framhaldsnám! Nú ætla ég að taka mér smáhlé til að melta og prófa allt það sem ég var að læra, en svo held ég áfram í masterinn. Það er alveg pottþétt.


Engin ummæli:
Skrifa ummæli