Þó ég sé búin að skila lokaverkefninu, þá er ekki þar með sagt að því sé alveg lokið og er ég enn að vinna í leiðréttingum á gömlum slóðum í Efnisbankanum. Í dag ætlaði ég að halda áfram með þetta, en þá virðist allur vefur Kennaraháskólans liggja niðri! Svona er þetta stundum. Ég verð bara að bíða, því þó ég sé með slóðirnar í skjali, þá þarf ég að geta lesið mér til um efnið í bankanum til að vera viss um að ég sé að setja inn rétta slóð. Alveg ótrúlegt hvað fólk er alltaf að færa efni til á vefnum og sumt er hreinlega alveg búið að taka út, virðist alla vega vera horfið.
Í staðinn hef ég verið að vinna í þessari síðu, setja inn lista yfir bloggara og krækjur, nýja mynd af mér og svona ýmislegt smálegt. Ég er mjög ánægð með að mér tókst að hafa nýju listana alveg í stíl við pistlalistana sem voru innbyggðir. Nú þarf ég bara að finna teljarann sem var hérna einu sinni, en ætli ég sé nokkuð að setja upp spjallborð eða gestabók, það eru ekki svo margir sem lesa þetta. Eða hvað?
7.11.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


7 ummæli:
það er um það bil 3 að lesa síðuna þína ég legg til að þú setur á msnið þitt -ég er með blogg blog name-
ok, bless.
Ha? Hvað á ég að setja á msn-ið? Og hvaða blogg ert þú með?
p.s. Stefán, þú gleymdir að setja nafnið þitt undir...:D
Sæl, Bára mín, ég sá að þú ert búin að setja mig inn á bloggaralistann þinn. Þá spyr ég bara eins og kjáni. Hvernig býr maður til svona lista? (ein ný á blogginu). Það sem mér finnst jákvæðast við þetta blogg er að ég hef heyrt frá fólki sem ég hef alltof sjaldan samband við.
Kveðja að Norðan
Kata
Ég fór inn í Templates og skrunaði niður þangað til ég sá textann sem er fyrir Recent posts. Afritaði hann og límdi fyrir neðan Archives. Síðan breytti ég textanum og lagaði til þangað til hann var orðinn að lista yfir bloggara! Þannig fékk ég sömu stillingar og eru skilgreindar í innbyggðu listunum. En ég sé að þú ert búin að setja inn krækju í veðrið á Akureyri þannig að kannski ertu þegar búin að læra þetta... Já, og afmæliskveðjur til Jóhanns Ólafs:)
Sandra Hrafnhildur :
Blessuð móðir góð, ég er reyndar ekki nógu dugleg að skoða síðuna þína :( Verð að bæta úr því...en hvaða stefán var að tjá sig fyrir ofan ? Gæti það verið hann bróðir minn eða ? En bið innilega að heilsa í bæinn, er þreytt eftir lærdómstörnina miklu í dag. Þannig ég ætla að fara að leggja mig...
Kærar kveðjur, Sandra H :*
Jú, jú, það mun hafa verið hann bróðir þinn. Ég fæ ekki heldur neinn botn í hvað hann var að meina þarna... verð að spyrja hann við tækifæri...
ég var bara að bulla
Skrifa ummæli