20.11.04

Laugardagskvöld

Það hefur verið óvenjumikið að gera hjá mér í þessari viku, en allt hefur samt gengið vel skulum við segja. Skólastarf var auðvitað að hefjast aftur eftir verkfallið og þar sem samstarfskona mín á bókasafninu brá sér í vikuferð til Jamaica, hef ég alveg séð um opnunartímann á meðan. Síðan eru Dagar myrkurs hér á Austurlandi nú um helgina og vorum við með uppákomu á bókasafninu í tilefni þeirra í gær, þar sem nemendur úr 7. bekk lásu upp ljóð og sögur. Það var mjög notaleg stund og tókst bara vel þrátt fyrir að sumir hefðu þurft að fá nýjan texta á síðustu stundu af því að þeir gleymdu blaðinu sínu heima... nefnum engin nöfn. En takk fyrir upplesturinn krakkar, þið stóðuð ykkur vel!


Í dag var jarðarför Ástvalds heitins og var ég að sjálfsögðu að syngja með kirkjukórnum. Þetta var falleg athöfn og mörg tónlistaratriði - vonandi hefur Anna Kristín ekki orðið fyrir vonbrigðum með kórinn.

Um síðustu helgi fórum við norður í jarðarför Fríðu frænku minnar í Víðihlíð og var ég ósköp fegin að hafa gert það, blessuð sé minning hennar. Marga þeirra sem ég hitti hef ég ekki séð í mörg ár en ég finn æ betur hvað það er mikilvægt að leggja rækt við bæði ættingja sína og vini. Þetta er eitthvað sem ég þarf að vera duglegri að gera.

Í kvöld höfum við bara setið/legið fyrir framan sjónvarpið og slappað af, ætli við förum ekki bara snemma að sofa. Við erum ekki óvön því þó það sé laugardagskvöld. Á morgun ætlum við Stefán að baka fyrstu jóla- eða aðventusmákökurnar og Jóhann ætlar að byrja að mála herbergið hans Stefáns, en það hefur ekki verið gert síðan við fluttum hér inn vorið 1994. Og kominn tími til myndu kannski sumir segja, en allt hefur sinn tíma.

Engin ummæli: