16.11.04

Að verkfalli loknu...

Ekki eru þetta nú góðir dagar. En skólastarf hefur verið með "eðlilegum" hætti í Seyðisfjarðarskóla bæði í gær og í dag. Það voru aðeins þeir tveir kennarar sem eru í bæjarstjórn sem ekki mættu í gær og voru þeir reyndar báðir löglega afsakaðir. Annar fékk nýlega hjartaáfall og hinn var sannanlega heima með veikt barn. Nú er bara að vona að samninganefndirnar nái fyrir helgina að koma sér saman um kjarasamning sem hægt er að sætta sig við. Annars er tónmenntakennarinn okkar búinn að semja texta sem meiningin er að Bristol bathroom singers (kennarakór Seyðisfjarðarskóla) syngi inn á disk annað kvöld og sendi síðan Þorgerði Katrínu. Textinn er um líðan kennara eftir lagasetninguna...

Tókuð þið annars eftir hvað skólastjórinn okkar var nálægt þessu? Hann spáði lögum á fimmtudag, það munaði tveim dögum. Og þegar miðlunartillagan kom fram munaði aðeins einum degi hjá honum. Alveg mögnuð kristalskúlan hans.

Engin ummæli: