Það varð hálfgert spennufall hjá mér þegar ég var búin að skila lokaverkefninu inn og ég hef verið eitthvað svo ótrúlega þreytt síðan. Lífið hefur samt gengið sinn vanagang, en í dag ligg ég bara í leti, best að reyna bara að hvíla sig um helgina og vera svo hress í næstu viku! Það styttist óðum í útskrift, við förum suður næsta föstudag. Við ætlum að gista á Skaganum en útskriftin verður þann 23.okt. kl. 14 í Skriðu, KHÍ.
Þá verður nú orðið stutt í stórafmæli hjá Pálma bró...
16.10.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


2 ummæli:
Sæl, og til hamingju með áfangann.
Ég mundi allt í einu eftir því að þú varst með heimasíðu einhversstaðar og fann þá þetta blogg. Eitt af því sem ég hef verið að bauka við í verkfallinu er að blogga sjálf. (Er búin að gera hausthreingerninguna)
Aftur til hamingju.
kv.
Kata
Takk fyrir innlitið og hamingjuóskirnar Kata mín. Ég er búin að fara inn á þína síðu og sé að þú ert heldur duglegri að skrifa en ég... en þetta er skemmtilegt :) Gaman að heyra frá þér, bið að heilsa í bæinn.
Skrifa ummæli