19.2.03

Loksins hafði ég það af að setja upp teljarann og nú er ég að hugsa um að setja upp svona kommentakerfi næst þegar andinn kemur yfir mig.

Annars sat ég við í allt gærkvöld og skipulagði verkefni fyrir 5.-6. bekk eftir 6 þrepa aðferðinni (The Big6) sem ég fann á Netinu á haustönninni. Þau eiga að skrifa greinar í tímarit og setja upp í Publisher. Ég velti mikið fyrir mér hvort ég gæti gert vefleiðangur úr þessu, en hætti svo við þar sem þau skrifa um sjálfvalið efni og þá er ekki hægt að beina þeim á neina vefi nema leitarvefi.

Vefrallýið mitt gekk vel í 8. bekk og voru lagfæringarnar greinilega til bóta. Ég á að kenna upplýsingamennt í 7. bekk í forföllum á föstudaginn og ætla að athuga hvort ég finn ekki skemmtilegt vefrallý handa þeim í verkefnabankanum. Það hlýtur að vera í lagi?

Engin ummæli: