Jæja, 7. bekkur prófaði vefrallýið í morgun og gekk það bara vel, að sögn kennarans. Hann var nokkuð ánægður með verkefnið og skólastjórinn líka, reyndar var sá síðarnefndi alveg hissa á að ég hefði búið það til sjálf, hvað sem það á að þýða! En 8. bekkur fær svo að prófa á mánudaginn.
Ég verð að segja að mér finnst pínulítið súrt að komast ekki í laugardagstímana, ef það eiga að fara að vera þar innlegg eða kynningar. En auðvitað komast ekki allir og kannski nennir einhver að setja helstu punktana sem fram koma upp á vef eða blogg? Alla vega ætla ég að hugsa til ykkar í fyrramálið.
14.2.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli