13.2.03

Prófaði vefrallýið í morgun hjá 5.-6. bekk, óhætt að segja að ég hafi lært ýmislegt á því. Það gekk samt ágætlega - þegar þau voru búin að átta sig á hvernig þetta virkaði. Þau eru ekki vön að vinna svona stýrð verkefni á vefnum og vildu til að byrja með bara nota Leit.is til að finna svörin, af því að þau eru vön því... Gagnasafn Morgunblaðsins vafðist líka dálítið fyrir þeim og hefði þurft sérverkefni til að kynna það. En þegar þau voru búin að gefa sér tíma til að lesa fyrirmælin, byrjuð að leita á fyrstu slóðinni og búin að fatta að nota copy og paste, þá fór þetta að ganga. Eftirá voru þau sammála um að þau vissu núna miklu meira um Kaldaljós en þau gerðu áður.

Ég sá að það borgaði sig að segja þeim hvaða spurningar ættu við hverja slóð og að þau voru mun fljótari ef þau hjálpuðust að 2 og 2. Sennilega er þetta rallý of erfitt fyrir 4. bekk, en kennarinn sem kennir upplýsingamennt í 7.-8. bekk tók vel í að prófa þetta hjá þeim. Gaman að vita hvernig það gengur og svo er bara að búa til nýtt og léttara vefrallý fyrir grislingana mína!

Engin ummæli: