Hmm, sé að ég þarf að vera mjög dugleg á morgun. Dagurinn í dag fór allur í skáldsögulestur og húsverk. Er núna á leið í háttinn til að geta vaknað snemma í fyrramálið og byrjað áður en ég mæti með kirkjukórnum í messu og haldið svo áfram þegar ég kem heim aftur. Annað kvöld er svo Stella í framboði í Herðubreiðarbíói og við hjónakornin og einkasonurinn höfum hugsað okkur að fara, en einkadóttirin og tengdasonurinn eru löngu búin að sjá hana.
Um hvað ætti ég eiginlega að gera vefleiðangur? Kannski öskudaginn og bræður hans?
22.2.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli