23.2.03

Hafði það af að senda tæknisöguna inn, eftir að hafa setið við í dag og lagað hana til. Þetta kemur allt með æfingunni, þó ég sé ekki alveg búin að fatta hvað það þýðir að "slæsa" og hvernig það er gert. En ég hef verið að æfa mig að búa til takka sem bregðast við þegar músin rennur yfir þá og stefni á að setja þá inn á skilasíðuna bráðum.

Er ég eitthvað að misskilja, eða ætli það sé ekki alveg nauðsynlegt að vera búinn að búa til vefleiðangur fyrir 1. mars? Annars ætti maður nú ekki að vera í vandræðum með að setja einn slíkan saman - þegar búið er að ákveða efnið.

Engin ummæli: