Vika frá því við komum heim frá Cornwall og ferðasagan fyrst að koma núna. Mér til afsökunar hef ég að það hefur verið svo brjálað að gera hjá mér síðan við komum til baka, að mér finnst ég enn vera hálfþreytt eftir ferðina og hef bara ekki haft orku til að vera í tölvunni á kvöldin. En nú hlýt ég að vera að hressast því ég fór heilan blogghring áðan :) Ferðin, þ.e.a.s. til Cornwall, var mjög vel heppnuð; við fengum gott veður a.m.k. framan af, fórum um allt og skoðuðum marga skemmtilega staði. Hér kemur ferða-myndasagan:
Lynmouth í Norður-Devon, þar sem við gistum fyrstu nóttina. Góð tilbreyting frá flatlendinu í Cambridge, þó það hafi líka sinn sjarma.


Clovelly, ótrúlegur staður. Þessi gata er svo brött að bílar geta ekki keyrt þar um og fólk notar sleða til að flytja vörur niðureftir og rusl uppeftir.


Syðsti oddi Bretlands, Lizard Point. Gaman að koma þarna.
Þessa "eggjabúð" rákumst við á við eitt húsið í þorpinu Cadgwith. Alveg væri ég til í að eiga nokkrar hænur og setja upp svona búð...


Það gat orðið ansi heitt í sólinni og því gott að fara í fótabað í sjónum. Samt enn of snemmt til að synda...
Lands End, vestasti oddi Englands. Hér er allt frekar túristalegt og fannst okkur Lizard Point mun viðkunnanlegri staður.
Þetta er alveg magnaður staður hátt uppi í snarbröttum klettum fyrir ofan sjóinn og ströndina. Þarna er útileikhús eins og hálft hringleikjahús, höggvið utan í klettinn. Mjög sérstakt.
St. Michael's Mount. Út í þessa eyju er hægt að ganga þurrum fótum á fjöru en maður þarf að passa sig að fara til baka áður en það kemur flóð. Við fórum þarna út og lentum á tónleikum með verstu hljómsveit í heimi ;)
Þetta er í Eden Project, eins konar náttúrugarði með áherslu á umhverfismál. Hann er að hluta til undir tvískiptu kúluþaki, þar sem annars vegar er hitabeltisloftslag og hins vegar Miðjarðarhafsloftslag. Hér erum við undir appelsínutré Miðjarðarhafsmegin.
"Cornish cream tea" algjörlega ómissandi á hverjum degi.
Síðasta stoppið okkar var við Stonehenge. Alltaf jafnstórbrotið.
"Cornish cream tea" algjörlega ómissandi á hverjum degi.
Síðasta stoppið okkar var við Stonehenge. Alltaf jafnstórbrotið.Eftir að við komum heim fór ég beint í það að safna gögnum fyrir rannsóknina mína í Comberton skólanum og um helgina fórum við síðan í tvær dagsferðir, aðra til Norwich og hina til London. Mamma og pabbi voru þá farin en við fórum með Nínu, Paul, Birni, Regínu, Jóhönnu og Jimmy. Fjögur þau síðasttöldu voru reyndar ekki með í Londonferðinni.
Það ætti að vera nokkuð ljóst að okkur leiðist ekki :)
Það ætti að vera nokkuð ljóst að okkur leiðist ekki :)



8 ummæli:
Vá, flottar myndir! Cornwall er greinilega "must see" staður næst þegar maður ferðast um sveitir Bretlands.
Bestu kveðjur!
Takk Elva, já Cornwall kemur skemmtilega á óvart, mæli alveg með ferð þangað. En það er dálítið út úr og sennilega ekki margir Íslendingar sem fara þar um. Biðjum líka kærlega að heilsa ykkur :)
Sæl Bára, gaman að heyra frá ykkur. Flottar myndir af ykkur, er líka búin að sjá Stonehenge :) Vorum upp í kofa hjá ömmu og afa í hádeginu í gær, svakalega gott veður. Bið að heilsa öllum og gangi ykkur vel með allt :)
Aldeilis skemmtilegar myndir af ykkur :) og frábærir staðir - væri alveg til í ferðalag á þessar slóðir ;)
Bestu kveðjur - Kristbjörg ;)
ps. baráttukveðjur með námið :)
Takk líka Helga Dögg og Kristbjörg - mér gengur greinilega vel að auglýsa Cornwall hehe ;) Líka ferlega gaman að skoða myndirnar ykkar! Bestu kveðjur bæði austur og suður.
Og já, nú verð ég að fara að hætta þessum þvælingi og taka námið föstum tökum, ekki nema tveir og hálfur mánuður í lokaskil. Verð að viðurkenna að ég er byrjuð að stressast, 20 þúsund orð...
Skemmtilegar myndir og já þér tekst vel að auglýsa Cornwall. Það væri gaman að skoða sig um á Bretlandi.
Mamma er hjá mér núna en er að fara norður aftur. Hún biður að heilsa þér.
Gangi þér vel í náminu og bið að heilsa :)
Kveðja, Inga.
Takk Inga mín :) Bretland er bara nokkuð nettur staður. Bestu kveðjur líka til ykkar allra.
Hæ
Skemmtileg frásögn og flottar myndir.
Við upplifum þessa skemmtilegu ferð í huganum við að lesa þetta og skoða myndirnar.
Ætluðum fyrir löngu að vera búin að
senda "comment".
Bestu kveðjur frá pabba og mömmu :)
Skrifa ummæli