21.5.07

Vísitasía

Þessi litla skrúðganga átti leið fram hjá húsinu okkar í gær nálægt hádegisbili. Hún stoppaði beint fyrir neðan íbúðina okkar, þar sem fram fór stutt athöfn sem minnti einna helst á einhvers konar blessun. Þar komu við sögu, rjúkandi kúla hangandi í bandi eða keðju, sennilega reykelsi og önnur minni með handfangi sem virtist innihalda einhvern vökva, kannski vígt vatn? Þessu var sveiflað og skvett í áttina að garðinum, fluttur var stuttur texti og að lokum hélt hópurinn syngjandi áfram göngu sinni. Ég ímynda mér að þau hafi farið einhvern hring og framkvæmt þessa athöfn hér og þar á leiðinni... án þess að ég viti nokkurn skapaðan hlut um þetta. Gæti líka hafa verið eitthvað í sambandi við nýliðinn uppstigningardag... hver veit?

Helgin var tiltölulega róleg. Við fórum í grill til Nínu á laugardagskvöldið, þegar sumir voru búnir að jafna sig eftir úrslit dagsins ;) Þar var Kristrún Þórðar í heimsókn og gaman að hitta hana. Í gær var svo síðasti leikur Stefáns með Comberton Crusaders og náðu þeir að vinna verðskuldað 2-0 sem var mjög skemmtilegt fyrir þá. Tímabilinu er þar með lokið en æfingar halda áfram þangað til skólinn fer í sumarfrí 20. júlí. Þá verður einmitt nákvæmlega komið að heimför okkar!

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

mmmm.... grill.... mikið væri ég til í að hafa grill á svölunum.

Vildi annars bara kvitta fyrir innlitið. Það er farið að styttast heldur betur í heimferð hjá ykkur - bara eftir tvo mánuði :)

Bestu kveðjur!

Bára Mjöll sagði...

Mikið væri ég til í að hafa svalir... það er eini gallinn við þessa íbúð. En já, bara tveir mánuðir eftir, er bæði farin að hlakka til að fara heim og kvíða fyrir að fara héðan. Hafið það gott ævinlega.

Elva sagði...

Mikið rosalega kannast ég við þetta sem þú ert að segja. Ég held að við Hannes séum nákvæmlega með þessa tilfinningu bæði, þ.e. hlökkum bæði til að fara heim og kvíðum fyrir.

sirrysif sagði...

Hvað tekur svo við þegar þið komið heim? Seiðisfjörður city?

Nafnlaus sagði...

Sæl og blessuð öll sömul.
Nú er annar í hvítusunnu og dagurinn sérlega fallegur, sól og hitinn er að hækka. Við sungum messu í gær og alltaf jafn gaman að vera með nýja organistanum. Svo er síðasta messan næsta sunnudag þegar sjómannadagurinn er. Við hlökkum öll til hér á Seyðis að fá ykkur til baka!!! Hefðum viljað fá ykkur miklu fyrr.
kv. Ólafía

Bára Mjöll sagði...

Nákvæmlega Elva, nákvæmlega.

Já Sirrý, það er Seyðisfjörður city - fjörðurinn fagri :)

Ólafía, ég er ekki búin fyrr en 16. júlí, annars hefðum við ábyggilega komið fyrr heim... en það verður bara því skemmtilegra þegar við komum! Verður ekki móttökuathöfn á bryggjunni? Bið kærlega að heilsa kirkjukórnum.

Nafnlaus sagði...

Hæ.
Auðvita verður athöfn á brygghunni.
Fánar og alles.
kv. Ólafía

Bára Mjöll sagði...

Kúl! Hlakka til :)