

Það kom að því að ég náði myndum af kúnum hér í garðinum okkar. Ég hef nú kannski ekki mikið vit á slíkum búpeningi en þykist samt sjá að þær sem eru hérna núna eru bara kálfar, gætu verið ársgamlir og eru af báðum kynjum. Þegar ég var að hjóla heim úr skólanum í dag, taldi ég um 20 gripi í garðinum. En þessar myndir voru teknar í gær og á þeirri fyrri sést einmitt líka í göngubrúna þar sem ég steyptist á hausinn af hjólinu ofan í skurð "sællar" minningar sl. haust. Nú hjóla ég þarna yfir eins og ekkert sé. Sumar eru svo sólgnar í laufið af grátvíðinum að ein þeirra var næstum dottin í ána við að teygja sig eftir því. Þær eru nefnilega búnar með allt sem þær ná í nema það sem hangir yfir vatninu og það er dálítið erfitt að ná því.


Hægra megin á þessari mynd grillir í svanahreiður á eyju í ánni rétt við göngustíginn hér fyrir ofan. Þau kúra sig bæði niður en hreiðrið er nær vatninu. Konan á myndinni er síðan að horfa á annað hreiður þar sem svarta svanaparið hefur komið sér fyrir á fjórum eggjum (sjá neðri myndina). Heiðrin eru í ca. 150 metra fjarlægð frá húsinu okkar og við gætum næstum séð þau út um gluggann ef trén væru ekki fyrir. Endurnar eru svo yfir og allt um kring. Ég er eiginlega viss um að þær verpa líka í þessari eyju en aðeins lengra upp með ánni gengum við fram á einhvers konar sefhænu á uppbyggðu hreiðri út í miðri á. Aldeilis fjölbreytt dýralífið hér í "húsdýra"garðinum. Og ég er ekki byrjuð að segja frá skordýralífinu sem teygir sig alveg inn í íbúðina okkar...
7 ummæli:
Hæ.
Aldeilis fjölskrúðugt dýralífið, mætti halda að beljurnar af Dvergasteini væru komnar á beit hjá ykkur. Hér er snjór í fjöllum eftir vorhretið. Þið hafið vonandi nýtt ykkur kosningarétt ykkar!!!
kv. Ólafía
Já, það er voða heimilislegt að hafa kýr á beit, finnst okkur. Ég kaus þegar ég fór með Stefáni í sendiráðið til að taka samræmda prófið á fimmtudaginn var, en Jóhann komst því miður ekki með. Þar missti Framsóknarflokkurinn af einu atkvæði en ég kaus þinn flokk Ólafía eins og venjulega :) Bestu kveðjur á Seyðisfjörð.
Framsókn mátti nú ekki við þessum atkvæðamissi frá Jóhanni samkvæmt skoðanakönnunum :)
Kveðja úr neðra.
ps. Nei, hér var enginn frídagugur í gær, því miður.
Æ, æ alltaf er framsókn að tapa. Það er gott að eiga skoðanasystur í ættinni. Annars er þetta spennandi og skemmtileg barátta sem lýkur á laugardaginn. Hvernig gekk í prófinu? Kristján tók dönskuna og fannst prófið dálítið erfitt.
kv. úr vori eða vetri eða hausti eða sumri, veit hreint ekki á hvað veðrið minnir í dag.
kv. Ólafía
Nei, þetta var afar slæmt fyrir Framsóknarflokkinn en hann hlýtur að spjara sig. Stefán var bara nokkuð sáttur með prófið, hann stefndi á að ná í kringum 9 og vonandi verður hann ekki langt frá því.
Kosninga- og Eurovisionkveðjur :)
hæhæ Endilega sendu jonathon hérna út. Það er allt morandi í Kasperum og jesperum en vantar allveg Jónatan.
Heyrðu Jón, ég geri það - þessi er að vísu frá Ástralíu, en kemur vonandi að sama gagni ;)
Skrifa ummæli