Ég skal segja ykkur það, það eru komnir andarungar á ána Cam. Við áttum leið hjá sl. föstudag og hittum þá þennan sæta hóp og stuttu síðar varð annar hópur á vegi okkar. Já, það sumrar snemma hér í Englandi í ár. Þeir tala líka um það að þetta sé óvenju snemmt - en við erum ekki að kvarta!Það er líka búið að setja kýrnar út, en það var gert um páskana. Reyndar hef ég ekki enn séð kýrnar sem voru í fyrrahaust í garðinum sem við hjólum í gegnum á leið í skólann, en þær koma vonandi. Ég þarf nefnilega endilega að ná mynd af þeim. Það var sagt frá því í bæjarblaðinu nú um helgina að 8 stórar rauðar kýr væru komnar út á Midsummer Common, 23 á Stourbridge Common, 15 á Coldham's Common og 8 á Coe Fen. Það er víst 800 ára gamall réttur fólks að beita kúnum á þessi almenningssvæði í bænum og greinilega ýmsir sem nýta sér það.
Við ætlum að leggja af stað til Cornwall í fyrramálið og komum ekki aftur fyrr en á þriðjudaginn í næstu viku. Lofa ferðasögu og myndum fljótlega eftir það...
Hafið það gott.


5 ummæli:
Sælar, já það er síðasti vetradagur hér hjá okkur í dag. Það er búið að vera kalt og slydda hér í morgun. Allt hvítt fyrir norðan,5 cm jafnfallinn snjór var á Akureyri í morgun en það er bara gott því Andrés Andar leikarnir eru þar um helgina. En sumarið kemur á morgun :) Gleðilegt sumar og hafið það um helgina. Bestu kveðjur úr Fellabænum
Gleðilegt sumar öll sömul.
Það fraus saman vetur og sumar sem bendir til þess að sumarið verði gott.
kveðjur Ólafía
Ég hlakka til að fá ferðasögu og myndir beint í æð eftir helgina. Bestu kveðjur til mömmu þinnar og pabba. Já og góða skemmtun!!
ég bíð spennt eftir ferðasögunni! Vildi að ég væri með ykkur öllum núna, en í staðinn dempi ég mér í lærdóm og prófatörn ;) Vona að þið hafið það rosalega gott og skemmtið ykkur vel ! Kærar kveðjur,
Ykkar Sandra Hrafnhildur
Gleðilegt sumar til Íslands - þar sem verið hefur alvöru sumarveður undanfarna daga! Vonandi verður áfram svona gott í allt sumar. Bestu kveðjur til ykkar allra og líka til þeirra sem eru 'down under' og hafa bara ágætis 'haust'veður sýnist mér...;)
Skrifa ummæli