14.5.07

Eurovision og svanafréttir

Fórum í Eurovision partý til Bjarka og Bryndísar á laugardags- kvöldið og skemmtum okkur vel þrátt fyrir fjarveru Eika Hauks og félaga. Það truflaði okkur ekkert þó Austur-Evrópa rústaði þessu, mörg lögin þaðan voru líka alveg þrusugóð! Regína var samt sú eina sem giskaði á að Serbía myndi vinna og fékk hún bráðskemmtilegan disk með sænsku hljómsveitinni KOOP í verðlaun. Við fjölskyldan héldum með Ungverjalandi, Finnlandi og Svíþjóð sem endurspeglar nákvæmlega álit íslensku þjóðarinnar, alla vega miðað við atkvæðagjöfina ef ég man rétt...

En frétt helgarinnar er að hvíta svanaparið er búið að unga út hvorki fleiri né færri en 10 ungum! Ég sá þau tilsýndar á föstudaginn með ungahóp og í gær hjólaði ég svo fram á þau á ánni með 10 litla unga. Mér fannst það svo ótrúlegt að ég margtaldi en fékk alltaf sömu útkomuna. Við löbbuðum svo áðan upp að á með myndavélina, en þá voru þau búin að koma sér fyrir á hreiðrinu fyrir nóttina. Mamman (held ég) var búin að breiða úr sér yfir ungana en sennilega hefur hún bara haft pláss fyrir 9 stykki því einn þeirra þurfti að vera á bakinu á henni. Á myndinni sést líka aðeins í annan unga vera að gægjast út undan væng. Svarta parið liggur enn á, það verður spennandi að sjá hvort þau ná að unga út.

Af okkur er annars það helst að frétta að Stefán var að byrja í tveggja vikna starfsfræðslu í dag, hann verður í tölvufyrirtæki sem heitir ARM og er bara sáttur við það. Jóhann er byrjaður í nýrri vinnu, honum var sagt upp í hinni vinnunni tveim dögum eftir að við komum heim frá Cornwall (!) en var svo heppinn að fá vinnu hjá Andrew Klose Engineering svo til strax. Það er svipuð smiðja og hin þar sem hann var áður, nema þessi er aðeins stærri og nútímalegri svo það er fínt. Ég er alltaf bara að læra og læra, er núna að vinna úr viðtölunum sem ég tók um daginn og þarf svo að fara að byrja að skrifa.

Hafið það gott og verið góð hvert við annað.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Við Helgi James giskuðum líka á að Serbía myndi vinna og dreng þótti ekki slæmt að hafa giskað rétt!
Frábært að Jóhann skyldi fá vinnuna og gaman fyrir Stefán að fara í starfskynningu.
Við förum bráðum að setja stefnuna á
Borgarnes. Farin að hlakka til.
Gangi þér vel að vinna úr viðtölunum.
Kærar kveðjur, pabbi og mamma

Bára Mjöll sagði...

En þið getspök, ekki náði ég þessu strax. En það var ótrúleg heppni að Jóhann skyldi fá nýja vinnu svona fljótt, annars hefðum við verið í vondum málum...

Góða skemmtun í Borgarnesi :)

Nafnlaus sagði...

Ég gat ekki fylgst með Eurovision vegna kosninganna. Var að vinna frá því 7,45 um morguninn til 23,30 um kvöldið svo ég sá ekkert af þessu. Enda ekkert spennandi úr því að Eiki var ekki með. Mér sýnist það hafa verið fjör í partýinu, enda vel valinn Seyðfirðingur þarna sýnist mér. Kveðjur til allra
Ólafía

Bára Mjöll sagði...

Þessi vinna er greinilega að skila sér Ólafía...;) Já, það var bara gaman í partýinu en við misstum samt af mesta fjörinu, því við fórum heim á kristilegum tíma svona upp úr miðnætti, enda Stefán með okkur. Mér skilst að eftir það hafi Björn tekið upp gítarinn og íslensku Júróvisjón-lögin hafið verið sungin langt fram eftir.
Bestu kveðjur.

Nafnlaus sagði...

Sæl frænka.
Takk fyrir kveðjuna á blogginu þeirra Elvu og Hannesar. Hér var haldin mikil afmælisveisla fyrir bekkjarfélaga á fimmtudaginn en á sunnudaginn verður fjölskylduboð :)
Hér fyrir sunnan var rjómablíða í dag og lögðumst við mæðginin út á pall þegar við komum heim. Annars er nú frekar misjafnt veðrið hér frá degi til dags!
Gott að heyra að Jóhann fékk aðra vinnu svona fljótt og gaman alltaf að lesa bloggið þitt.
Skilaðu góðri kveðju til Jóhanns og Stefáns.
Kv. Inga

Bára Mjöll sagði...

Sæl Inga mín, það hefði verið gaman að koma í kaffi til ykkar í gær :) En nú styttist í að við förum heim og kannski hittumst við bara fyrir norðan um mánaðamótin júlí/ágúst?!