29.5.07

Af svönum og öðru fólki...

Það eru því miður ekki góðar fréttir af stóru svanafjölskyld- unni sem ég hef verið að fjalla um hér undanfarið. Þau byrjuðu svo vel, með 11 unga heyrðum við núna síðast, en smátt og smátt hefur ungunum fækkað og þegar við sáum þau síðast rétt fyrir helgi voru ekki nema fjórir eftir :( Það er greinilega ekki auðvelt að koma upp ungum hér á ánni Cam og er víst t.d. mikið af rottum... En okkur skilst að svanahjónin hafi farið með 9 unga niður á aðalána í síðustu viku og þar hafi hópurinn tvístrast einhvern veginn og hluti unganna orðið viðskila við foreldrana. Ég sendi Jóhann út af örkinni áðan til að athuga með þau en sú eftirgrennslan varð árangurslaus með öllu. Vonandi eru þau ekki hætt og farin! En hann rakst á þessa myndarlegu gæsafjölskyldu og smellti mynd af henni í staðinn. Þau hafa verið með sex unga hérna á ánni um skeið og þeir virðast dafna svona líka ljómandi vel. Það er þó ánægjulegt að segja frá því. Þarna á myndinni sést líka í annan svarta svaninn en já, hinn liggur enn á. Engin breyting þar. Samkvæmt mínum heimildum verður þar að öllum líkindum legið á til eilífðar, því þessir tveir svörtu svanir eru víst alls ekki par heldur sennilega systur. Þær munu þó báðar vera þekktar undir nafninu Georg.

Þetta minnir mig annars dálítið á annað par, þ.e. nýja borgarstjórann hér í Cambridge og konuna hans. Borgarstjórinn heitir Jenny og er kynskiptingur, var áður karl en er nú kona og býr með annarri konu sem líka var áður karl. Ég sé nú ekki alveg fyrir mér að þetta gæti gerst á Íslandi sem sýnir að þó okkur finnist Bretar stundum vera aftarlega á merinni t.d. í jafnréttismálum, þá eru íbúar Cambridge alveg dásamlega frjálslyndir og víðsýnir.

Helgin var blaut og köld og lítið hægt að gera annað en að hafa það gott upp í sófa. Við skruppum þó til London á laugardaginn og fórum aftur á Vísinda- safnið af því að Jóhann var ekki með síðast. Ekki klikkaði það frekar en fyrri daginn. Við vorum samferða Kjartani og Sæunni og Ben í lestinni en þau fóru svo að skoða eitthvað annað, í búðir og svona. Reyndar fórum við líka með þeim ásamt Nínu og Paul út að borða á alsírska veitingastaðnum á Mill Road á föstudagskvöldið. Það klikkar ekki heldur.

5 ummæli:

Elva sagði...

Ég sá einmitt frétt um þennan borgarstjóra á mbl um daginn og hugsaði með mér hvað fólk í Cambridge væri frjálslegt. Ég segi það sama - ég er ekki að sjá þetta gerast á Íslandi.

Nafnlaus sagði...

Sælar, það greinilega gerist margt í Cambridge :) Ég held bara svei mér þá að sumarið sé komið hjá okkur. Við gátum borðað hádegismatinn úti á palli á mánudaginn (frídagur). Bestu kveðjur úr Fellabænum.

Bára Mjöll sagði...

Samfélagið hérna er dálítið sérstakt Elva; fjölmenningarlegt og skapandi reyndar eins og kannski oft er í svona háskólabæjum, en ekki endilega dæmigert fyrir breskt samfélag. Enda er þetta fyrsti kynskiptingurinn sem verður borgarstjóri í Bretlandi og jafnvel þó víðar væri leitað...

Gott að heyra Helga, að sumarið skuli vera komið (aftur) á Íslandi, veðrið er líka að lagast aftur hér. Ég sá einmitt myndirnar af ykkur á pallinum, ekkert smá flottur hjá ykkur!

Bestu kveðjur, knús og kossar :)

Nafnlaus sagði...

Sjómannadagshelgin er að renna upp og það lítur út fyrir að veðrið verði skaplegt aldrei þessu vant á sjómannadegi. Það er árgangamót hjá mér og nóg að sýsla.
Góða helgi.
Ólafía

Bára Mjöll sagði...

Gleðilega sjómannadag - og góða skemmtun á árgangamótinu Ólafía!