
Eftir stutta en góða törn á bóka- safninu í morgun ákváðum við að skella okkur eftir hádegið á
Strawberry Fair. Það er svona úti- hátíð sem er blanda af markaði og skemmtun og er alltaf haldin á Midsummer Common fyrstu helgina í júní. Þarna var þvílíkur mannfjöldi saman kominn og mikið stuð. Veðrið var með besta móti, vel yfir 20 stig og glampandi sól. Við röltum um, smökkuðum á ýmiss konar kræsingum og skoðuðum varninginn - sá engin jarðarber samt... Hittum síðan Nínu og Paul og fórum með þeim að hlusta á unga og efnilega hljómsveit sem var að spila í stóru tjaldi. Þegar við vorum búin að fá nóg af því, vorum við bara fegin að setjast aðeins í skuggann og fá okkur hressingu áður en haldið var heim á leið.

Má til með að setja hérna líka eina mynd af svanafjölskyldunni 'okkar' sem birtist óvænt á kanalnum fyrir neðan gluggana okkar í dag. Við höfðum hvorki séð tangur né tetur af þeim í rúma viku og ég var farin að halda að þau væru farin eitthvað annað eftir öll áföllin. Reyndar var bara annar fullorðni fuglinn (mamman líklega?) en ungarnir eru enn fjórir og búnir að stækka heilmikið. Við tókum með okkur brauð og gáfum þeim þegar við lögðum af stað á hátíðina. Okkur fannst dálítið furðulegt að sjá hvernig ungarnir syntu bara með öðrum fætinum og geymdu hinn næstum því upp á bakinu á meðan! Eða við sáum ekki betur, en þeir eiga vonandi eftir að spjara sig.
8 ummæli:
Voðalega líturðu vel út frænka!
Já, ég tek sko undir það - glæsileg myndin af þér og bara af fjölskyldunni allri ;)
gaman að fylgjast með ferðum ykkar þarna úti og dauðöfunda ykkur af þessum 20 gráðum - hér lafir þetta ennþá bara í ca. 10-17 gráðum, svona eftir því hvar maður er staddur á landinu og í Rvík er svona dropadagur ;)
Heimasætan skellti sér í veiðiferð með pabbanum vestur á Snæfellsnes en ég er heima og nota daginn til almennilega þrifa - sem er bara ekki ennþá svo gott með að sinna með svona litlar og ofur hjálpsamar hendur á sveimi (þó hún fái tusku stundum líka)
Bestu kveðjur - Kristbjörg & co :)
Sælar, ohh ég man þegar ég var úti í Cambridge hvað mér fannst gaman á Strawberry Fair. Hér var pínu afmælisveisla í dag, bestu kveðjur Helga Dögg og strákarnir
Gaman að fylgjast með ykkur.
Flott myndin af svaninum.
Ekki er nú blessuð blíðan hér í borginni eins og er, rok og rigning eins langt og spáin nær. En það er hlýrra fyrir norðan.
Ég er með kveðju til þín frá Systu Guðmunds en ég hitti hana í morgun. Hún er að vinna á Hjallastefnuleikskóla og var í heimsókn í morgun í skólanum okkar. Hún er víst orðin amma, Silja eignaðist strák fyrir nokkru síðan.
Hafið það gott :)
Já, ég tek undir þau orð að þið lítið mjög vel út öll sömul. Þið hafið það greinilega bara gott þarna í útlandinu :)
Kv. Inga.
Takk stelpur mínar :) Það eru orð að sönnu að við höfum það ljómandi gott og náttúrlega algjört forréttindalíf hjá mér að vera 'bara' í náminu.
Inga - takk fyrir kveðjuna frá Systu. Ég vissi ekki að þau væru flutt suður en var hins vegar búin að frétta í gegnum Söndru að hún væri orðin amma. Skilaðu kveðju til baka ef þú rekst á hana aftur!
Knús og kossar frá Cambridge.
Já, ég skal skila kveðjunni, ef ég rekst aftur á Systu.
Hafðu það gott :)
Kv. Inga.
Ps. hér er aðeins farið að létta til en búðið er að rigna og rigna..... Eins gott líka að þetta fari að snúast við því ég er að fara í sumarfrí:) Jibbí......
leit við ;)
Skrifa ummæli