
Sonur minn uppskar í dag árangur erfiðis síns sl. vor þegar hann setti saman sögu og sendi í
sögusamkeppni. Hann náði sem sagt 3. sæti í flokki 13-16 ára og var boðið til Reykjavíkur á verðlaunaafhendingu. Flugu þeir feðgar suður í morgun og komu heim í kvöld með verðlaunin sem voru Heims Atlas, bolur og tölvuleikur að eigin vali. Það var sjálfur forseti lýðveldisins hr. Ólafur Ragnar Grímsson sem afhenti verðlaunin eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Vel af sér vikið Stefán og til hamingju!
3 ummæli:
Vá! Til hamingju með það. Takk annars fyrir öll skemmtilegu "commentin" á síðunum okkar. Það væri gaman að sjá þig ef þú átt leið til Reykjavíkur í vetur, við gætum jafnvel boðið þér upp á kaffi frá Galapagos :)
Það væri nú ekki amalegt að fá að smakka Galapagoskaffi á Grandakaffi ;) aldrei að vita nema ég kíki!
Já endilega kíktu ef þú átt leið hjá. Ásta og Pálmi voru þau fyrstu sem smökkuðu kaffið nú um helgina, mér skilst að það hafi verið gott en sterkt! Kannski við verðum búin að finna bestu uppáhellinguna þegar þú kemur :)
Skrifa ummæli