28.8.05

Alltaf er gott að koma heim

Komin heim á klakann, sem er réttnefni í þetta sinn því snjór í fjöllum og 5° hiti heilsuðu okkur þegar við lentum á Egilsstaðaflugvelli í gærkveldi eftir velheppnaða Danmerkurferð. Skólaferðalag 10. bekkjar Seyðisfjarðarskóla 2005 var ekkert smá skemmtilegt, veðrið lék við okkur og allt gekk upp (næstum því). Hér kemur stutt yfirlit:
  • Norræna sigldi lygnan sjó alla leiðina og enginn varð sjóveikur nema Kristín smá
  • Það var hitabylgja í Legolandi
  • Sindri og Jón eru hræddir við geitunga og kóngulær, sérstaklega Sindri
  • Við heimsóttum H.C. Andersen í Odense og versluðum dálítið í Rosengaard Centre
  • Biðum í klukkutíma eftir lest sem var löngu farin...
  • Löbbuðum hring eftir hring upp Sívalaturn og versluðum slatta á Strikinu
  • Borðuðum æðislegt pasta á fínum ítölskum veitingastað þar sem þjónninn elskaði okkur
  • Jóna var húmoristi ferðarinnar
  • Fórum í Christianiu, vaxmyndasafnið, ótrúlega safnið og Tivoli sama daginn
  • Björn Fannar var bestur í LaserDome í Malmö
  • Sáum litlu hafmeyjuna og varðmannaskiptin við Amalienborg
  • Versluðum meira á Strikinu
  • Jón og Jafet skruppu í dýragarðinn
  • Rétt náðum að fara á Bakkann áður en hann lokaði fyrir veturinn
  • Elín fór milljón sinnum í skotturninn og öll hin tækin án þess að verða veik eins og sumir...
  • Það voru slagsmál um leigubílana fyrir utan Bakkann og Ingibjörgu var hent út úr einum
  • Apríl gleymdi passanum sínum og öllum handfarangri í leigubíl í Reykjavík, en það hlýtur að skila sér
  • Allir fengu sér tattú og kennararnir líka
  • Það er samt ekki alvöru og endist bara í átta daga
  • Alls voru teknar 67 hópmyndir
  • Sem sagt gott :)
Nú tekur alvara lífsins við í nokkrar vikur en svo erum við að fara með vinnunni hans Jóhanns í vikuferð til Portúgal. Hversu gott getur lífið ekki orðið?

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Fín ferð heyri ég. En já, það er alltaf gott að koma heim :) Annars er ég líka aftur á leiðinni út. Vinkonuhelgarferð til Köben. Lífið er ljúft!

Bára Mjöll sagði...

Og Köben er æðisleg! Góða ferð og góða skemmtun :)