6.8.05

Dýrðin ein...

Brúðkaup Elvu og Hannesar fór fram í blómagarðinum í Höfða sl. laugardag og var athöfnin alveg dásamleg. Veðrið skartaði sínu fegursta og flugurnar héldu sig meira að segja til hlés á meðan. Þetta er alveg fullkominn staður fyrir brúðkaup, sérstaklega í svona góðu veðri. Á eftir var stórglæsileg og skemmtileg veisla heima hjá Ásdísi. Við óskum þeim nýgiftu enn og aftur til hamingju þar sem þau spóka sig nú í brúðkaupsferð í Suður-Ameríku.

Daginn eftir skruppum við á Gúmmískó og drukkum miðdagskaffi með ættingjum frá Vogum. Mikið var það gaman - vonandi getum við verið meira með næst.

Áður en við fórum aftur austur náðum við líka að heimsækja Söndru mína niður í Reykjadal og fara með henni í nýju fínu sundlaugina á Laugum.

Síðasta vikan í sumarfríinu hefur síðan einhvern veginn liðið, allt of hratt auðvitað, og alvara lífsins byrjar aftur á mánudaginn þegar ég mæti í vinnu á bókasafninu. Við Ingibjörg þurfum líka að fara að huga að lokaundirbúningi fyrir skólaferðalag 10. bekkjar, en nú eru innan við tvær vikur þangað til við leggjum í hann!

Engin ummæli: