9.8.05

Elsku Sandra mín,

Til hamingju með afmælið! Í morgun kl. 8 voru nákvæmlega 20 ár síðan þú fæddist á sjúkrahúsinu á Húsavík. Samt er eins og það hafi verið í gær. Svona líður tíminn og nú ert þú eiginlega flogin úr hreiðrinu! Þú átt samt vonandi eftir að heimsækja okkur oft, oft í framtíðinni.

Mundu bara, núna þegar allar heimsins dyr standa þér opnar og möguleikarnir eru óteljandi, að skoða vel hvað það er sem þig sjálfa raunverulega langar að gera og stefna svo ótrauð að því. Megi sólin ætíð brosa við þér elsku, besta Sandra mín. Kærar kveðjur í Reykjadalinn.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju med afmaelid i gaer Sandra min!! Ég man sko eftir tvi thegar eg for til Husavikur ad skoda thig med Illuga og ommu thinni og afa. Thu varst ekkert sma saet :)
Bestu kvedjur,
Elva