16.8.05

Haust?

Það er rigning og rok. Og það lekur inn um forstofudyrnar eins og venjulega í svona veðri. Nú er notalegt að sitja undir teppi í sófanum og hlusta á rigninguna lemja rúðurnar. Haustið nálgast, skólinn fer að byrja og norsku dagarnir eru meira að segja búnir. En veðurspáin fyrir næstu daga er ágæt, sagði Jóhann mér áðan og vonandi fáum við gott ferðaveður þegar við siglum af stað með Norrönu á fimmtudagsmorguninn í langþráð skólaferðalag 10. bekkjar. Ekki laust við að ferðafiðringur sé kominn í mannskapinn.

2 ummæli:

Katrín Úlfarsdóttir sagði...

Á nú að fara til Færeyja, ég gleymdi alltaf að spyrja hvert þú værir að fara í skólaferðalag??

Góða ferð

Bára Mjöll sagði...

Nei, við ætlum að sigla alla leið til Danmerkur og dvelja þar í viku, það er hefð í skólanum hér. Hvernig er það hjá ykkur?