11.9.05

Sunnudagur

Eiginlega ætti ég að vera að vinna í kennsluáætlunum núna. Hinir ljúfu sumardagar eru liðnir að þessu sinni og vinnurútína hversdagsins tekin við. Nú gefst lítill sem enginn tími til að slæpast í tölvunni...

Það hefur líka haustað óvenjusnemma, snjóað niður í miðjar hlíðar og verið kalt undanfarið. Við fengum þó stuttan sumarauka í gær og fyrradag þegar hlýnaði dálítið, en nú blæs ískaldur strekkingsvindur fyrir utan gluggann minn. Það er samt ekki rigning eins og ég sé hjá veðurstúlkunni minni að er á Egilsstöðum þessa stundina.

Ég hef ekkert farið í berjamó og litlar fregnir haft af berjasprettu hér fyrir austan. Solla sagði mér samt ábyggilega um daginn að það væru bláber en engin krækiber.

Þrjú næstu kvöld ætla ég að kenna á tölvunámskeiði fyrir starfsmenn bræðslunnar, sem verður örugglega mjög gaman, síðan eru kóræfingar að hefjast á fimmtudagskvöldið og á föstudaginn verður haustþing KSA á Djúpavogi með tilheyrandi árshátíð um kvöldið. Næsta vika er því alveg pökkuð hjá mér en við förum suður á sunnudag eftir viku og fljúgum til Portúgal daginn eftir.

Kannski við kíkjum á Grandakaffi ef það verður opið á sunnudaginn!?

Það er ljóst að rúmlega vikufrí á skólatíma setur rútínuna heilmikið úr skorðum. Ég þarf auðvitað að undirbúa alla kennslu áður en ég fer og þarf svo pottþétt að vinna helling upp þegar ég kem til baka. Það er því næsta víst að hér á lítið eftir að heyrast í mér næstu vikurnar.

Ég skal samt senda kveðju úr sólinni í Portúgal ef ég kemst í tölvu þar syðra :)

3 ummæli:

Katrín Úlfarsdóttir sagði...

Góða skemmtun í Portúgal. Það vildi ég nú að ég væri að fara til útlanda í svona hálfan mánuð. Er ekkert mál að fá ´frí á skólatíma þarna fyrir austan?

Nafnlaus sagði...

Hæ, hæ!!
Það er sko opið á Grandakaffi alla helgina. Endilega kíkið við ef þið hafið tíma :)

Bára Mjöll sagði...

Kata, jú það er dálítið mál. En þetta er starfsmannaferð hjá Jóhanni þannig að við gátum ekki ráðið tímasetningunni. Mér finnst sjálfri pínu óþægilegt að vera að fara svona á skólatíma, en maður lætur sig hafa það!

Elva, við komum ekki suður fyrr en annað kvöld og förum út eldsnemma á mánudagsmorgun. Þú geymir bara smá kaffi frá Galapagos handa mér þangað til seinna :) Skilaðu kveðju til Ingu.