28.7.05

Hvað á að gera um helgina?

Eins og aðrir landsmenn ætlum við að leggja land undir fót um verslunarmannahelgina. Förinni er heitið norður í Mývatnssveit þar sem okkur er boðið í brúðkaup Elvu og Hannesar á laugardaginn, Krossdalsvöllur verður heimsóttur og svo er aldrei að vita nema maður kíki á Gúmmískó 2005, ættarmót Vogunga.

Stefán er reyndar í útilegu með Ólafíu og Guðjóni og hefur ekki komið heim síðan hann fór suður á ReyCup fyrir rúmri viku. En hann er væntanlegur á sunnudaginn og þar með ætti dögum mínum sem blaðburðarkonu að vera lokið. Hann er sem sagt að bera út Moggann og auðvitað verður einhver að leysa hann af þegar hann er ekki heima. En ég kvarta ekki því þetta er fín hreyfing og veðrið hefur verið ágætt undanfarið. Síðasti dagurinn minn er á morgun, tengdó ætlar að bjarga laugardeginum en blaðið kemur hvorki út á sunnudaginn né mánudaginn (sem betur fer;).

En nú þarf ég að fara að brjóta saman. Góða helgi!

3 ummæli:

Katrín Úlfarsdóttir sagði...

Góða helgi til ykkar líka. Svo krossleggjum við puttana og vonum að veðrið verði gott bæði á annesjum og inn til landsins. ;)

Katrín Úlfarsdóttir sagði...

Eru kannski þrjú enn í annnesjum?

Bára Mjöll sagði...

Gerum það, annars er bara að taka því ef veðrið verður ekki alveg eins og það á að vera. Brúðkaupið á að fara fram í blómagarðinum í Höfða, en ég held að það sé búið að panta kirkju til vara.

Nei, skv. minni orðabók eru bara tvö enn í annes... Góða skemmtun í dalnum "kæra" :)