Hef það alveg ljómandi gott í sumarfríinu, takk fyrir. Er reyndar að vinna á bókasafninu 12 tíma á viku en það er nú lítið mál. Fer svo aftur í frí þar þegar Solla kemur heim eftir 2 vikur.
Jóhann og Stefán komu heim úr fótboltaferðinni til Færeyja í gær og mikið var nú gott að fá þá aftur heim. Það var orðið ansi einmanalegt hérna heima á meðan þeir voru í burtu og nokkuð ljóst að það á ekki við mig að búa ein... Reyndar komu mamma og pabbi í heimsókn helgina sem þeir voru úti og gistu eina nótt hjá mér. Við fórum á tvenna tónleika á Jazzhátíð Egilsstaða; fyrst með Stórsveit Reykjavíkur á föstudagskvöldið og svo með Kór Langholtskirkju, Stórsveitinni og Kristjönu Stefáns á laugardaginn. Þeir voru báðir magnaðir, ein besta jazzhátíð sem ég hef farið á.
Er að reyna að vera dugleg að hreyfa mig, búin að fara tvisvar í ræktina í þessari viku og einu sinni í jóga. Við Maria ætlum svo að byrja aftur að fara í gönguferðir í næstu viku. Það dugar ekkert annað en harkan í stríðinu við forðafellingarnar! Jæja, við eiginmaðurinn ætlum að drífa okkur í ræktina núna fyrir hádegi fyrst það er ekki beint veður fyrir golf. Ég er samt aðeins byrjuð að standa við áramótaheitið og það er bara byrjunin!
1.7.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli