Þeir hjá Blogger hafa bætt myndafídusinn hjá sér síðan ég setti inn mynd síðast og hann er að verða mjög flottur hjá þeim.
Fór í mjög góða gönguferð í morgun út í Austdal með fólki úr hugleiðsluhópnum og fleirum. Það var mjög áhugavert og skemmtilegt. Fékk að prófa göngustafi í fyrsta sinn og er ekki frá því að þeir séu málið. Ekki síst vegna þess að með þeim fær efri hluti líkamans líka hreyfingu á göngunni. Ein konan í ferðinni er skyggn og sagði okkur ýmislegt um huldufólk, papa og framtíð Seyðisfjarðar. Það var mjög fróðlegt. Á morgun er jafnvel fyrirhuguð önnur ferð því Kristbjörg er í bænum.


2 ummæli:
Ég sé að þú hefur fundið út úr þessu með myndirnar.
Það er alveg nauðsynlegt að vera með göngustafi, sérstaklega ef maður er í fjallgöngum. Ég var að fá mér stafi um daginn. En hef því miður ekki prófað þá ennþá.
kveðja
Já, þetta er sami fídusinn og ég hef verið að nota, en nú eru þeir búnir að bæta hann heilmikið þannig að hægt er að skrifa við hliðina á myndunum og láta blogger um að minnka þær. Mun þægilegra.
Það er freistandi að fá sér stafi, það eru annað hvort þeir eða golfsett :)
Skrifa ummæli