13.7.05

Andleg fræði

Það er búið að vera mikið að gera í hugleiðsluhópnum undanfarið. Fyrst fórum við í gönguna út í Austdal, síðan var hugleiðsluferð inn í skógrækt með Kristbjörgu á sunnudagskvöldið og í gærkveldi var hún með sérstaka kundalini hugleiðslu með okkur í "húsi andanna". Ég verð að segja að ég hef aldrei upplifað annað eins. Kristbjörg miðlaði ævafornri og mjög merkilegri þekkingu til okkar. Þetta er allt saman alveg nýtt fyrir mér og ég veit ekki alveg hvert ég er að fara - Jóhann hefur orðið miklar áhyggjur af þessu brölti mínu. Það er samt á hreinu að hugleiðslan gerir mér gott, en ég þarf kannski að kynna mér þessi andlegu fræði betur áður en ég held áfram.

Í því skyni tók ég bókina hennar Erlu Stefánsdóttur á bókasafninu í dag, en hennar nafn var nokkrum sinnum nefnt í gærkveldi. Kannski hún skýri eitthvað. Svo vildi ég fá að vita hver er verndarinn minn og hvort að það sé hægt að treysta á hann!

Engin ummæli: