20.7.05

Hásumar

Helgin var alveg sérdeilis fín. Við vorum með 2 "sjaldséða" gesti; Illuga Má og Söndru Hrafnhildi, sem var verulega ánægjulegt :) Hér erum við að fara að borða dýrindis grillaðan kjúkling a la Jóhann áður en unga fólkið skellti sér á LungA-ball með Todmobile. Við "gamla" fólkið fórum sem sagt ekki á ballið, enda var þetta 16 ára ball og vitað að húsið yrði alveg troðið. Einhvern veginn finnst manni það ekki lengur spennandi. En ég hefði pottþétt farið ef þau hefðu verið með tónleika.

Kannski förum við bara í staðinn á tónleikana hennar Emiliönu Torrini á Borgarfirði um næstu helgi. Það er alla vega í athugun.

Í sumar hefur kennarahópurinn verið að hittast annað slagið til að halda sér heitum og í morgun var kaffið hjá mér. Hingað kom góður hópur kennslukvenna ásamt tveimur litlum aðstoðarmönnum, sem eiginlega má segja að hafi stolið senunni. Mér finnast þessir fundir vera mjög hvetjandi og þeir virka a.m.k. þannig á mig að ég fer að skoða ýmislegt um skólamál á netinu og núna áðan fann ég áhugaverða lesningu hjá Laugalækjarskóla um einstaklingsmiðað nám, svipað verkefni og við erum að byrja á.

Reyndar var ég að skoða heimasíðu Laugalækjarskóla vegna þess að Stefán fór suður í dag til að keppa með Hetti á Rey-Cup mótinu og hann á einmitt að gista þar. Áfram Höttur!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já vonum að strákarnir standi sig fyrir sunnan

Bára Mjöll sagði...

Þeir gera það örugglega og skemmta sér líka vonandi vel...:) Jón, ertu alveg hættur að blogga?