Ókei, það er kominn miðvikudagur og ég get ekki sagt að verkefnum hafi miðað mikið áfram hjá mér síðan fyrir helgi. Akureyrarferðin var fín, reyndar var þetta hálfgerð erfidrykkja því SR-mjöl er ekki lengur til sem slíkt, þeir hafa sameinast Síldarvinnslu Norðfjarðar og fyrirtækið heitir núna SVN (svín). Jæja, í gærkveldi fórum við svo í himsókn til systurdóttur mannsins míns sem eignaðist pínulítinn fyrirbura fyrir 2 mánuðum. Hann var um 4 merkur við fæðingu, en er nú búinn að ná eðlilegri fæðingarþyngd og þau eru nýkomin austur með hann. Algjör dúlla og sem betur fer gengur allt vel.
4. bekkur hélt áfram með vefleiðangurinn í gær, þau kláruðu að velja/draga sér viðfangsefni og fóru svo í það að finna myndir á Netinu. Það gekk mjög vel, en kannski spurning um höfundarrétt í sumum tilvikum... Í næstu viku ætla þau að skoða bækur og skrifa stuttan texta til að setja á vefsíðu með myndinni. Það verður ekki mjög langt, því þetta verður næstsíðasti tíminn og við þurfum að klára í þarnæstu viku!
7.5.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli