11.5.03

Mér er farið að ganga dálítið illa að skrá mig inn á Blogger.com, ég skrái mig inn og ekkert gerist. Svo reyni ég kannski aftur nokkrum klukkutímum seinna og þá er allt í lagi!

Jæja, ég er búin að hugsa heilmikið um lokaverkefnið og það er að koma mynd á það í huga mínum: Þetta á að verða námsumhverfi á vef fyrir nemendur og kennara sem vilja vinna þemaverkefni um náttúruna að vori til. Mig langar að hafa vefleiðangurinn þar inni, skipulagið sem ég gerði (bæði það sem snýr að kennurum og nemendum), námsvefinn um gang sólar, fullt af gagnlegum krækjum og svo er draumurinn að hafa líka gagnvirk verkefni. Ég hef að vísu aldrei gert svoleiðis vefsíður, en maður hlýtur að finna út úr því... Er ekki hægt að nota Dreamweaver í það, eða er kannski sniðugra að nota forrit eins og Hot Potatoes?

Á meðan ég er að hugsa þetta, hef ég haldið áfram að laga persónulega vefinn minn til og skilasíðuna, t.d. er ég mjög ánægð með nýjan borða sem ég bjó til í dag og setti á skilasíðuna. En núna ætla ég að fara inn í rúm og halda áfram að horfa á kosningasjónvarpið:)

Engin ummæli: