17.5.03

Gleymdi að segja frá því að krakkarnir í 4.bekk settu viðfangsefnin sín í vefleiðangrinum upp á vefsíðu í vikunni. Þau skoðuðu fræðibækur og völdu fróðleiksmola sem þeim fannst áhugaverðir. Dálítið stapp að fá þau til að umorða, en það tókst í flestum tilvikum, held ég. Ég er búin að búa til forsíðu sem tengir í allar síðurnar þeirra og vonast til að þau klári í næsta tíma (sem er reyndar síðasti tíminn) og þá ætti Vorvefur Seyðisfjarðarskóla að fara í loftið!

Í dag hef ég unnið að lokaverkefninu, byrjaði að hanna útlitið og er búin að senda fyrstu drög á Netið. En athugið að þau eiga örugglega eftir að breytast! Svo er ég líka að reyna að læra að gera gagnvirkar síður í Dreamweaver. Ég er með leiðbeiningar síðan í haust frá Sólveigu, en þær eiga við FrontPage, svo það er kannski ekki von að þetta gangi. Kannski ég geri gagnvirku verkefnin bara í FrontPage!?

Útskriftarárgangurinn minn frá MS er að halda upp á 20 ára stúdentsafmælið okkar akkúrat núna og óneitanlega hefur hugurinn hvarflað til þeirra þar sem þau eru að skemmta sér á Borginni á balli að loknu borðhaldi. Til hamingju með daginn!!

Engin ummæli: